Fótbolti

Juventus fór illa með baráttuglaða leikmenn Celtic

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Juventus er svo gott sem öruggt áfram í fjórðungsúrslit Meistaradeildar Evrópu eftir 3-0 sigur á Celtic í Glasgow í kvöld.

Alessandro Matri skoraði fyrsta mark leiksins strax á þriðju mínútu eftir að hann náði að pota boltanum framhjá Fraser Forster, markverði Celtic.

Heimamenn létu þó þetta ekki slá sig af laginu og sóttu stíft eftir þetta. Þeir Kris Commons og Efe Ambrose komust nálægt því að skora en inn vildi boltinn ekki.

Juventus tók svo yfir leikinn undir lok seinni hálfleik og skoraði tvívegis á síðasta stundarfjórðungnum. Fyrst Claudio Marchisio og svo Mirko Vucinic, eftir sendingu þess fyrrnefnda.

Það ríkti frábær stemning á heimavelli Celtic í kvöld en litlar líkur verða að teljast að liðið muni spila fleiri heimaleiki þar í Meistaradeildinni þetta tímabilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×