Körfubolti

Annar stórleikur Jakobs í röð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Jakob Örn Sigurðarson heldur áfram að fara á kostum með toppliði Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta.

Jakob Örn skoraði 30 stig fyrir Sundsvall í sex stiga sigri á LF Basket í kvöld, 89-83, en í síðasta leik skoraði hann 31 stig fyrir lið sitt.

Skotnýting Jakobs var frábær, sérstaklega fyrir utan þriggja stiga línuna þar sem hann setti niður sex af níu skotum sínum. Þá gaf hann sex stoðsendingar og tók fjögur fráköst.

Hlynur Bæringsson skoraði sextán stig fyrir Sundsvall auk þess að taka þrettán fráköst. Hann gaf eina stoðsendingu í leiknum.

Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi en þegar tæpar þrjár mínútur voru eftir var jafnt, 81-81. Sundsvall tryggði sér svo sigurinn með því að skora sex af síðustu átta stigum leiksins. Hlynur og Jakob létu báðir af sér kveða á lokamínútunum.

Sundsvall er á toppi deildarinnar með sex stiga forystu á næsta lið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×