Valskonur unnu topplið Keflavíkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2013 20:55 Kristrún Sigurjónsdóttir. Mynd/Vilhelm
Valskonur héldu áfram sigurgöngu sinni í Dominos-deild kvenna í körfubolta í kvöld þegar þær skelltu sér til Keflavíkur og unnu 19 stiga sigur á toppliði Keflavíkur, 97-78. Þetta var aðeins annað tap Keflavíkurliðsins á deild og bikar á tímabilinu. Þetta eru athyglisverð úrslit ekki síst vegna þess að þessi lið mætast síðan aftur í bikarúrslitaleiknum í Höllinni eftir eina og hálfa viku. Valsliðið hefur nú unnið alla leiki sína á árinu eða síðan að Jaleesa Butler kom til liðsins en einn leikjanna tapaðist síðan á kæru. Kristrún Sigurjónsdóttir og Jaleesa Butler fóru á kostum í Keflavík í kvöld en Butler var þarna að mæta sínum gömlu félögum. Kristrún skoraði 31 stig og Butler var með 24 stig, 16 fráköst, 6 stoðsendingar og varði 7 skot. Unnur Lára Ásgeirsdóttir er líka búin að ná sér af meiðslunum og skoraði 15 stig á 19 mínútum í leiknum í kvöld. Jessica Ann Jenkins skoraði 21 stig fyrir Keflavík, Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 18 stig og Birna Valgarðsdóttir var með 16 stig og 11 fráköst. Valskonur tóku völdin strax í upphafi og voru 30-18 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Keflavík náði að minnka muninn í sex stig fyrir hálfleik, 42-48, með því að vinna annan leikhlutann 24-18 en Valskonur voru miklu sterkari í seinni hálfleiknum.
Dominos-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Eðla rölti inn á brautina á æfingu Formúla 1 Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira