Fótbolti

Kristín Ýr kemur aftur til Vals

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Anton
Kristín Ýr Bjarnadóttir mun spila með Val í Pepsi-deild kvenna í sumar en hún var síðast á mála hjá Avaldsnes í Noregi.

Henni var boðið til reynslu hjá sænska liðinu Mallbacken í síðustu viku og var hjá liðinu í nokkra daga. Hún ákvað þó að halda kyrru fyrir á Íslandi, en þetta kemur fram í Morgunblaðinu.

„Tvö norsk lið komu líka til greina en ég er búin að ákveða að spila með Val og tel að það sé best í stöðunni," sagði Kristín Ýr sem stefnir að því að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu fyrir EM næsta sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×