Körfubolti

Hlynur og Jakob með 44 stig saman í naumum sigri

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson.
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson. Mynd/Vilhelm
Hlynur Bæringsson og Jakob Örn Sigurðarson voru lykilmenn á bak við þriggja stiga heimasigur Sundsvall Dragons á 08 Stockholm HR, 86-83, í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld en þetta var 19. sigur Drekanna í 22 leikjum í vetur.

Hlynur var með 25 stig og 12 fráköst í leiknum og Jakob bætti við 19 stigum en saman nýttu þeir félagarnir öll 22 vítin sín. Hlynur setti niður 13 af 13 vítum sínum en Jakob nýtti öll níu víti sín.

Sundsvall Dragons vann fyrsta leikhlutann 32-14 og 54-36 yfir í hálfleik. 08 Stockholm liðið vann sig inn í leikinn í seinni hálfleik og komst nálægt því í lokin að stela hreinlega sigrinum.

Sundsvall Dragons er með átta stiga forskot á Uppsala á toppi sænsku deildarinnar en Uppsala-liðið á reyndar einn leiki inni á Peter Öqvist og lærisveina hans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×