Dacia er mjólkurkú Renault 5. janúar 2013 09:00 Saga Dacia nær aftur til 1966
Bílgerðum Dacia fjölgar hratt og sala þeirra skilar meiri hagnaði en af Renault bílumEngum hjá Renault datt í hug að Dacia yrði að gróðavænlegasta hluta Renault þegar franski bílaframleiðandinn keypti hið rúmenska Dacia árið 1999. Þá var aðeins einn bíll í framleiðslu hjá Dacia, Logan fólksbíllinn. Nú eru hinsvegar 5 bílar í framleiðslu hjá Dacia, meðal annars Dacia Duster jepplingurinn sem til sölu er hjá BL hérlendis. Þessar 5 bílgerðir eru til sölu í 36 löndum og seljast vel, enda ódýrir bílar sem hitta markaðinn vel fyrir nú á erfiðleikatímum í Evrópu. Velta Dacia nemur nú um 17% af heildarveltu Renault í vesturhluta Evrópu. Forstjóri Renault lét hafa eftir sér að Dacia væri nú helsta mjólkurkú fyrirtækisins, enda er hagnaðurinn af hverjum seldum Dacia bíl 9% á meðan hann er 0,4% af Renault bílum. Til stendur að fjölga bílgerðum Dacia, en Dacia bílar eru að stórum hluta byggðir með sömu íhlutum og eru í Renault bílum.
Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Senda tvö þúsund landgönguliða til Mið-Austurlanda Erlent