Spáir yfir tíu þúsund eintökum 27. september 2012 07:00 vinsæll Fyrsta plata Ásgeirs Trausta hefur selst í um tvö þúsund eintökum.fréttablaðið/valli
Fyrsta plata tónlistarmannsins Ásgeirs Trausta, Dýrð í dauðaþögn, hefur selst eins og heitar lummur að undanförnu. Samanlagt hafa um tvö þúsund eintök farið yfir búðarborðið á aðeins þremur vikum og situr platan í efsta sæti Tónlistans aðra vikuna í röð. „Ég er nokkuð viss um að Ásgeir fer yfir tíu þúsund eintök á árinu en það er langt umfram væntingar fyrir nokkrum vikum," segir Eiður Arnarsson hjá útgáfufyrirtækinu Senu þegar hann er beðinn um að spá fyrir um söluna. Mugison sló öll met í fyrra með plötunni Haglél sem seldist í um þrjátíu þúsund eintökum. Er Ásgeir Trausti næsti Mugison? „Ég veit það nú ekki. Í samhengi við plötusölu held ég að það sé erfitt að leita að næsta Mugison. Mig grunar að Haglél sé fyrirbæri sem verði ekki endurtekið í sölu en það þarf mikið að ganga á til að plata Ásgeirs verði ekki söluhæsta plata ársins," fullyrðir Eiður. Helst gæti My Head Is An Animal með Of Monsters and Men skákað Ásgeiri Trausta en hún hefur selst jafnt og þétt hér á landi síðan hún kom út fyrir ári síðan, eða í yfir sautján þúsund eintökum. - fb
Lífið Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira