Óvenju mörg eintök pöntuð af Rowling 27. september 2012 09:00 J.K. Rowling „
Við finnum fyrir mikilli eftirvæntingu fyrir þessari bók," segir Ragnar Veigar Guðmundsson, vörustjóri erlendra bóka í Eymundsson, um nýjustu bók metsöluhöfundarins JK Rowling, The Casual Vacancy, sem kemur út í Bretlandi í dag. The Casual Vacancy er fyrsta skáldsaga JK Rowling síðan seinasta bók Harry Potter-seríunnar kom út árið 2007. Mikill spenningur er fyrir bókinni í Bretlandi en yfir milljón eintök hafa þegar selst þar í forsölu. Búist er við góðum viðtökum hér á landi og fullyrðir Ragnar að pantað hafi verið óvenjulega mikið magn af bókinni. „Við pöntuðum fleiri hundruð eintök sem er óeðlilega mikið. Biðlistar eru þegar farnir að myndast í búðunum og spennan er greinilega mikil." Mikil leynd hefur verið yfir The Casual Vacancy og til að mynda fékk blaðamaður The Guardian að lesa bókina í læstu herbergi með öryggisverði yfir sér áður en hann tók viðtal við Rowling. Í viðtalinu kemur fram að Rowling hafi litlar áhyggjur af sölutölum, en er í mun að þessi fyrsta skáldsaga hennar fyrir fullorðna falli í kramið hjá lesendum. Ragnar á von á því að bókin verði komin í verslanir um eða eftir helgi, en hún er svo væntanleg í íslenskri þýðingu í nóvember. The Casual Vacancy verður hins vegar fáanleg á rafbókarformi á vefsíðunni Eymundsson.is strax í dag. - áp
Lífið Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Sahara Ray látin Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira