Umfjöllun og viðtöl: Valur - HK 25-26 Sigmar Sigfússon í Vodafonehöllinni skrifar 17. nóvember 2012 00:01 Kristinn Guðmundsson, þjálfari HK. mynd/vilhelm
HK-ingar stálu sigrinum af Valsmönnum á lokamínútunum í Vodafonehöllini, 25–26, í lokaleik 8. umferðar N1-deildar karla í handbolta í dag. Valsmenn komu einbeittari til leiks í fyrri hálfleik og spiluðu ágætis vörn á köflum þar sem nokkuð góð markvarsla fylgdi í kjölfarið frá Hlyni Morthens, markmanni Vals. Leikurinn var mjög hraður í upphafi hálfleiksins og mikið var skorað á fyrstu tíu mínútum leiksins þegar staðan var 5–4 fyrir Valsmenn. Um miðbik hálfleiksins gengu Valsmenn á lagið og náðu þegar mest var fjögurra marka forystu þar sem HK-ingarnir gerðu klaufaleg mistök og köstuðu boltanum nokkrum sinnum frá sér. Hlynur varði nokkra mikilvæga bolta sem skiluðu sér í mörkum upp úr hraðarupphlaupum. Síðustu fimm mínúturnar tóku HK-ingar sig á og minnkuðu bilið í 14–12 þegar dómarar leiksins flautuðu til hálfleiks. Björn Ingi, markmaður HK, átti fínan spett á lokamínútunum. Bjarki Már Gunnarsson, hinn hávaxni línumaður HK, fékk að líta rauða spjaldið á 7. mínútu þegar hann gaf Valsmanni viljandi olgnbogaskot að mati dómara. Jafnræði var með liðunum í upphafi seinni hálfleiks og skiptust liðin á að skora. Valsmenn héldu tveggja marka forystu sinni þar til á 40 mínútu þegar Daníel Berg Grétarsson jafnar leikinn fyrir sína menn í HK, í stöðuna 21-21. Patrekur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna, hafði rétt áður tekið leikhlé sem skilaði litlu. Í stöðunni 21–22 varði Björn Ingi Friðþjófsson mjög mikilvægt víti sem Valdimar Þórsson tók, fyrir það hafði hann verið mjög öruggur af punktinum. HK-menn ætluðu sér sigurinn og keyrðu vel á Valsmenn á síðustu mínútunum, en loka mínúturnar voru afar spennandi þar sem Valsmenn fengu tvö tækifæri til þess að jafna leikinn en nýttu ekki. Fór svo að HK-ingar uppskáru afar mikilvægan eins marka sigur hérna í Vodafonehöllinni og losnuðu undan þungri pressu sem hefur verið á þeim eftir nokkra leikja taphrinu. Markahæstu menn voru Valdimar Þórsson hjá Val með átta mörk og Bjarki Már Elísson hjá HK með níu mörk. Liðin höfðu sætaskipti á töflunni eftir þennan leik, þar sem HK skellti sér uppfyrir Val í sjötta sæti og Valsmenn niður í það sjöunda Ólafur Víðir: Það er karakter í þessu liði „Það er gríðarlegur karakter í liðinu, við missum Bjarka út af á fyrstu sjö mínútunum og svo erum við bara að elta allan tímann. Þetta var eiginlega kærkominn þjófnaður, en liðið á ákveðið hrós skilið,“ sagði Ólafur Víðir Ólafsson, fyrirliði HK eftir leikinn. „Það eru einhver kíló farin af pressu og þetta er líka svo gott fyrir hópinn sem slíkan. Við erum allir mjög góðir vinir og þetta er frábær hópur og við sáum það alveg í dag að við erum klárir í svona leiki“ „Við eigum helling inni og það sást eitthvað af því hérna í dag. Við misstum til að mynda Bjarka út og þá kemur bara maður í manns stað. Það kemur línumaður inn á, Tryggvi sem er ungur strákur og spilaði bara fanta vel. Við erum í meiðslavandræðum núna svo það er virkilega gaman að sjá aðra koma inn“ Patrekur: Það var góður möguleiki að klára þennan leik „Það er alltaf fúlt að tapa, sérstaklega þar sem það var góður möguleiki á því að vinna þenna leik í dag. En við náðum því ekki og getum eiginlega bara sjálfum okkur um kennt. Það vantaði drápseðlið til þess komast lengra fram úr þeim og klára svo leikinn. Mistökin voru að koma á mjög slæmum tíma svo þetta er afar svekkjandi,“ sagði Patrekur Jóhannesson, þjálfari Valsmanna. „Grunnurinn er að mæta í leiki og leggja sig 100% fram og reyna að fara eftir skipulagi, það er það sem ég segi við strákana. En þeir eru ungir og ráða ef til vill síður við pressuna sem fylgir svona jöfnum leikjum, því miður en þetta er að koma“ „Það eru gæði í þessu liði, ef við hefðum unnið þennan leik hefðum við farið upp um tvö sæti á töflunni en í staðinn förum við eitt niður svo þetta er allt galopið. Ég get eiginlega ekki verið svekktur út í strákana, þeir eru búnir að leggja sig 100% fram á æfingum og skoða video, þannig að það þýðir ekkert að væla þó við töpum einum leik“ „Nú erum við að koma upp með stráka sem eru uppaldir í klúbbnum sem hefur ekki verið síðastliðin ár. Þannig að ég vill sjá fleiri koma á völlinn til þess að sjá sína menn, en ég þakka samt kærlega fyrir þá sem komu“
Olís-deild karla Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Sjá meira