Fyrsta myndband Krumma frumsýnt á Vísi 7. nóvember 2012 13:06
Vísir frumsýnir hér nýtt myndband hljómsveitarinnar Legend við lagið City sem Krummi Björgvinsson samdi, tók upp og leikstýrði. Myndbandið var tekið upp á 17. júní í sumar."Ég vopnaði mig með einni kameru, tveimur karakterum og aðstoðarmanneskju og eyddi sautjándanum á hlaupum um bæinn. Ég hafði vonast til að fleira fólk væri í bænum þennan dag, en því virðist fara fækkandi ár hvert," segir Krummi.Myndbandið segir frá ungu og ástföngnu pönkarapari sem býr á götunni og fer um bæinn og stelur sér til matar ásamt því að taka þátt í hátíðarhöldunum. "Þau lenda svo upp á kant hvort við annað og rífast en allt endar þó vel. Sagan er svolítið klisjuleg en efnið er myndrænt og flott."Krummi segir gerð myndbandsins hafa verið skemmtilegt verkefni og að það væri gaman að prófa að gera myndbönd fyrir aðra í framtíðinni. Hann naut liðsinnis tveggja vina sinna við gerð myndbandsins því Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir stíliseraði klæðnað pönkaranna og kvikmyndagerðarmaðurinn Frosti Jón Runólfsson mun aðstoðaði hann við eftirvinnslu.Pönkarana leika Elísabet Jónsdóttir og Frímann Ísleifur Frímannsson. Aðstoðarkona við gerð myndbandsins og leikari var Hlédís Maren Guðmundsdóttir.Fyrsta plata Legend, Fearless, hefur fengið prýðisgóða dóma hjá gagnrýnendum. Hægt er að kynna sér hljómsveitina nánar á Facebook-síðu hennar, á Twitter og á Tumblr.
Tónlist Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist X-ið bætir við sig Bolla Lífið Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira