Handbolti

Ófært frá Eyjum - tveir leikir í dag í hættu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Valli
Handknattleikssamband Íslands hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram að tveimur leikjum í meistaraflokki í dag hefur verið seinkað til kl.18 vegna ófærðar frá Vestmannaeyjum.

Um er að ræða annars vegar leik Aftureldingar og ÍBV í N1 deild kvenna og hins vegar leik ÍBV og Fjölnis í 1.deild karla.

Það skýrist rúmlega 13 í dag hvort það verður siglt og verður þá endanleg ákvörðun með leikina tekin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×