Fótbolti

Alfreð: Svekkjandi að skora ekki á undan

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
mynd/vilhelm
„Við gáfum allt í þetta og uppskárum ekki neitt að þessu sinni, það eru mikil vonbrigði," sagði Alfreð Finnbogason framherji Íslands eftir tapið gegn Sviss í kvöld.

„Fyrri hálfleikur var mjög lokaður og ekki mikið að gerast. Við fáum eitt, tvö hálffæri en í seinni hálfeik finnst mér við vera með yfirhöndina þegar þeir skora. Það var mjög svekkjandi að við náum ekki að skora á undan þeim. Við fengum nokkur góð upphlaup og það sama má segja um seinna markið. Við fáum eitt, tvö færi en þetta er reynslu mikið lið sem kann að halda forystu," sagði Alfreð sem átti í fullu tré við Johan Djourou varnarmann Arsenal allan leikinn.

„Ég hef reynt að bæta það í mínum leik að halda boltanum og láta finna fyrir mér og mér fannst það takast ágætlega í kvöld," sagði Alfreð en Diego Benaglio reyndist Íslandi erfiður í marki Sviss.

„Þetta er flottur markmaður, hann átti líka stórleik gegn Noregi. Ég átti snöggt skot í fyrri hálfleik sem hann varði vel og svo varði hann líka vel frá Birki og öðrum."

Ísland er með sex stig eftir fjóra leiki og er Alfreð ekki sáttur við það.

„Maður vill alltaf meira en til að komast lengra þurfum við að vinna lið eins Slóveníu, Albaníu og Kýpur á heimavelli. Það eru þeir sigrar sem telja mest og ef við náum að kroppa einhver stig á útivelli þá telja þau líka mikið.

„Spilamennskan okkar var góð. Þetta er ekki eins og stundum áður þegar við eigum góða kafla en töpum, við viljum ekki detta í þá klisju. Það voru góðir kaflar og við létum Sviss hafa mjög fyrir hlutunum."

Alfreð sagði erfiðan leik í Albaínu ekkert hafa setið í liðinu. „Þeir léku líka erfiðan leik og það er engin afsökun.

„Nú fara menn og reyna að standa sig með sínum félagsliðum. Landsliðið er bónus. Menn standa sig og verða vonandi í góðu formi í mars," sagði Alfreð að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×