Jón Daði og Glódís Perla efnilegustu leikmenn Pepsi-deildanna í sumar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. október 2012 18:03 Jón Daði Böðvarsson. Mynd/Daníel
Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson og Stjörnustelpan Glódís Perla Viggósdóttir voru valin efnilegustu leikmenn Pepsi-deildanna í sumar. Valið var tilkynnt í sérstakri athöfn í Silfurbergi í Hörpu í kvöld en hátíðin var einnig í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Jón Daði Böðvarsson er 20 ára miðjumaður og fór mikinn með Selfossliðinu í sumar. Jón Daði var þar með 7 mörk og 4 stoðsendingar í 22 leikjum en tókst þó ekki að koma í veg fyrir að Selfyssingar féllu úr deildinni í annað skiptið á þremur árum. Jón Daði er fyrsti Selfyssingurinn sem fær svona stór verðlaun og ennfremur fyrsti leikmaður úr falliði sem hreppir þau síðan að Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður ÍR, var valinn efnilegastur eftir sumarið 1998. Glódís Perla Viggósdóttir er 17 ára varnarleikmaður sem var á sínu fyrsta ári í Pepsi-deild kvenna. Glódís fékk sitt fyrsta tækifæri með A-landsliðinu í sumar en hún kom til Stjörnunnar frá HK/Víkingi þar sem hún hefur spilað í b-deildinni undanfarin sumur. Glódís Perla er fyrsta Stjörnustelpan til þess að fá þessi verðlaun síðan að markvörðurinn María Björg Ágústsdóttir var valin efnilegust eftir sumarið 2000. Hún er einnig fyrsti varnarmaðurinn sem fær þessi verðlaun í áratug.
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Íþróttamaður ársins missti meðvitund á sjúkrahúsi Sport „Er eiginlega bara enn þá að meðtaka þetta“ Sport Stuðningsmaður Man. United missir sætið sitt: „Ég er hjálparvana og vonlaus“ Enski boltinn Littler gerir andlitið sitt að skráðu vörumerki Sport „Önnur sönnun fyrir hæfileikum hans, hugrekki og karakter“ Fótbolti Real Madrid skoðaði vitlaust hné hjá Mbappé og gerði illt verra Fótbolti Tvö mörk dæmd af Chelsea í Meistaradeildartapi á móti Arsenal Fótbolti Sveindís Jane valin besti leikmaður vikunnar Fótbolti Tiger fékk skell í endurkomunni en útilokar ekki þátttöku á Masters Golf Finnst Salah vera meiri goðsögn í ensku úrvalsdeildinni en Ronaldo Enski boltinn Fleiri fréttir KR og Valur mætast í Mjólkurbikarnum Víkingskonur tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum Gleðifréttir fyrir FH-konur sem halda Andreu Rán Þriðji ættliðurinn sem spilar með FH 41 árs Birkir fær loks að spila með bróður sínum Blikar leiðrétta tal um ungan leikmann „Það var erfitt að anda“ Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sjáðu öll mörkin, rauða spjaldið og vítin þegar Fylkir fagnaði titlinum Fylkir - KR 8-7 | Ólafur Kristófer hetja Fylkis sem vann Lengjubikarinn í fyrsta skipti „Glasið er hálffullt hérna í Vesturbænum“ Hyggst læra af mistökum Stjörnunnar og sér tækifæri gegn KR Sýning hjá Hrafnhildi Ásu í kvöld 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Sjá meira