ÍR-ingar Reykjavíkurmeistarar í handbolta karla Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. september 2012 21:37 Björgvin Þór Hólmgeirsson í leiknum í kvöld. Mynd/Stefán
ÍR-ingar unnu í kvöld fyrsta titilinn í karlahandboltanum í vetur þegar þeir tryggðu sér Reykjavíkurmeistaratitilinn með fjögurra marka sigri á Val í Vodafone-höllinni. ÍR-ingar unnu alla fimm leiki sína í mótinu í ár en þeir eru að koma upp í N1 deild karla að nýja og hafa endurheimt marga uppalda ÍR-inga. ÍR-ingar unnu leikinn 26-22 eftir að hafa verið 13-11 yfir í hálfleik. Sturla Ásgeirsson skoraði 12 mörk fyrir ÍR í kvöld á móti sínum gömlu félögum í Val og Björgvin Þór Hólmgeirsson skoraði 5 mörk. Kristófer Fannar Guðmundsson varði líka vel í markinu. Bjarki Sigurðsson, þjálfari ÍR, var vissulega ánægður þegar Vísir heyrði í honum í kvöld en spar á yfirlýsingarnar þrátt fyrir að fyrsti titilinn sé kominn í hús. „Það er alltaf gaman að vinna titla en þetta er æfingamót og bara byrjunin á tímabilinu. Við erum búnir að taka þátt í tveimur öðrum æfingamótum með úrvalsdeildarliðum. Menn eru að reyna að spila sig saman enda er ég bara með nýtt lið í höndunum. Þetta tekur ákveðinn tíma en við erum allavega að sýna framfarir," sagði Bjarki en hann fagnar því að fá allt gömlu ÍR-ingana heim. „Það er ekki spurning. Ég er með breiðan og góðan hóp og það er valinn maður í hverju rúmi," sagði Bjarki Sigurðsson, þjálfari nýkrýndra Reykjavíkurmeistara í handbolta karla.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Sjáðu Víkinga fagna lokaflautinu og sæti í næstu umferð Fótbolti Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Fótbolti Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira