Four eftir fjögurra ára bið 26. ágúst 2012 00:01
Fjórða plata ensku gítarrokksveitarinnar Bloc Party er nýkomin út. Hún heitir einfaldlega Four en fjögur ár eru einmitt liðin síðan sú síðasta, Intimacy, leit dagsins ljós. Bloc Party var stofnuð á Reading-hátíðinni árið 1999 af söngvaranum og gítarleikaranum Kele Okereke og Russell Lissack gítarleikara. Þeir prófuðu sig áfram með nokkur nöfn á hljómsveitinni áður en þeir sammæltust um Bloc Party. Bassa- og hljómborðsleikarinn Gordon Moakes gekk til liðs við sveitina eftir að hafa svarað auglýsingu í tímaritinu NME og trommuleikarinn Matt Tong fékk starfið eftir áheyrnarpróf. Saman byrjuðu þeir að spila tónlist undir áhrifum frá Mogwai, The Cure, Joy Division, Sonic Youth og síðar meir Radiohead. Bloc Party vakti fyrst athygli eftir að strákarnir létu útvarpsmanninn Steve Lamacq hjá BBC og Alex Kapranos, söngvara Franz Ferdinand, fá prufuupptöku af laginu She´s Hearing Voices. Fyrsta platan, Silent Alarm, kom út 2005 á vegum Wichita Recordings og sló í gegn. Gagnrýnendur héldu vart vatni yfir henni og var hún kjörin plata ársins hjá NME og náði þriðja sæti á breska breiðskífulistanum. Jafnframt var hún tilnefnd til Mercury-verðlaunanna. Bloc Party var þar með orðin ein áhugaverðasta rokksveitin í Bretlandi og fylgdi árangrinum eftir með næstu plötu, A Weekend in the City, árið 2007. Upptökustjóri var Jacknife Lee, sem hafði unnið með Snow Patrol og U2. Hún náði öðru sæti á breska listanum og því tólfta á þeim bandaríska, þar sem sveitin hafði verið dugleg að spila. Gagnrýnendur voru þó ekki allir á sama máli um ágæti plötunnar. Næst sendi Bloc Party frá sér Intimacy þar sem Jacknife var aftur við stjórnvölinn ásamt Paul Epworth. Í þetta sinn var meiri áhersla lögð á elektróník og tilraunamennsku. Gripurinn féll nokkuð vel í kramið hjá gagnrýnendum og komst hæst í áttunda sæti breska listans og átjánda í Bandaríkjunum. Í framhaldinu fóru meðlimir Bloc Party hver í sína áttina og sinntu ýmsum hliðarverkefnum. Útgáfusamningurinn við Wichita var runninn út og nokkur óvissa var í gangi. Á endanum hófust upptökur á nýrri plötu. Í þetta sinn var upptökustjóri Alex Newport sem hafði unnið með The Mars Volta og At the Drive-In og kom hún út á vegum Frenchkiss Records. Four hefur fengið ágætis dóma og þykir gítardrifnari en síðasta plata. Clash gefur henni 8 af 10 í einkunn, tímaritin Q og Mojo 3 stjörnur af 5 en vefurinn Pitchfork er lítt hrifinn og gefur henni aðeins 4,9 af 10 í einkunn.freyr@frettabladid.is
Mest lesið „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Lífið Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal Lífið Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda Lífið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Meryl Streep verður Joni Mitchell Bíó og sjónvarp Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Fegurðardýrkun í Oz-landi Gagnrýni Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið X-ið bætir við sig Bolla Lífið Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Tónlist Fleiri fréttir „Hún er komin til að vera“ Byrjaði allt í blokkinni í Breiðholti Stjórinn mótmælir ICE með lagi um Minneapolis Íslenskur tónlistarmaður í lykilhlutverki Högni hjálpar fólki að slaka á Kristinn Svavarsson er látinn Hætta óvænt við tónleikaferðalög sín „Þetta er ekki uppgjör á mínu uppeldi“ Skilur meðvirkni eftir í fortíðinni Rugluðust á Laufeyju og „Megan“ „Ég mun aldrei stíga á svið í Bandaríkjunum aftur“ Nýtt lag frá Halla Reynis sex árum eftir andlát hans Vinsælustu lögin á Bylgjunni 2025 Sjá meira