Dómur yfir Pussy Riot í dag 17. ágúst 2012 06:50 mynd/AFP
Dómur verður kveðinn upp yfir meðlimum pönkhljómsveitarinnar Pussy Riot í dag. Stúlkurnar þrjár eru ákærðar fyrir óspektir og guðlast en þær stóðu fyrir svokallaðri pönkbæn í dómkirkju í Moskvu í febrúar. Þar sungu þær mótmælasöngva og beindust þeir að rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni og stuðningi hennar við framboð Vladimírs Pútín til forseta Rússlands. Rétttrúnaðarkirkjan hefur beitt sér fyrir því að stúlkurnar hljóti þunga refsingu vegna athæfisins. Þyngsta mögulega refsing er sjö ár en saksóknarar í málinu hafa farið fram á þriggja ára fangelsisvist. Almenningur í Rússlandi virðist vera klofinn í afstöðu sinni til málsins. Margir segja framferði dómsmálayfirvalda vera óviðunandi og að illa hafi verið farið með stúlkurnar. Þá hefur því verið haldið fram að málið sé liður í stórsókn rússneskra yfirvalda gegn andófsmönnum í landinu. En málið hefur ekki aðeins vakið athygli í Rússlandi. Listamenn víða um heim hafa lýst yfir stuðningi við stúlkurnar, þar á meðal eru Madonna, Paul McCartney og Björk. Talið er að dómurinn verði kveðinn upp klukkan ellefu fyrir hádegi í dag. Hafa stuðningsmenn Pussy Riot víða um heim boðað til mótmæla við rússnesk sendiráð.
Andóf Pussy Riot Mest lesið Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Lægðardrag á leiðinni Veður Fleiri fréttir Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Sjá meira