Viðskipti erlent

Stærstu seðlabankar heimsins grípa enn til aðgerða

Magnús Halldórsson skrifar
Seðlabankar Bandaríkjanna og Evrópu segja í tilkynningum, í sitt hvoru lagi, að þeir muni gera það sem til þarf til þess að styðja við efnahagslegan vöxt. Haft er eftir Ben Bernanke, seðlabankastjóra Bandaríkjanna, að vöxtum verði haldið við „allra lægstu mörk" í það minnsta fram á árið 2014, í þeirri von að það styðji við framgang atvinnulífsins og vinni gegn stöðnun og samdrætti í efnahagslífi, jafnt í Bandaríkjunum sem annars staðar.

Í júní uppfærði bandaríski seðlabankinn hagvaxtarspá sína og spáði 2,4 prósent hagvexti í Bandaríkjunum í stað 2,9 prósent í fyrri spá.

Á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC í dag er frá því greint að búist sé við því að Seðlabanki Evrópu muni grípa til aðgerða til þess að lækka fjármögnunarkostnað Spánar, en álag á opinberar skuldir ríkissjóðs Spánar hefur verið á bilinu 6 til 7 prósent undanfarnar vikur, og stóð í 6,59 prósent í morgun, samkvæmt upplýsingum frá Bloomberg.

Mario Draghi, seðlabankastjóri Evrópu, lét hafa eftir sér í samtali við fjölmiðlamenn í gær að hann væri tilbúinn að „gera hvað sem væri" til þess að verja evruna, og koma í veg fyrir hrun hennar vegna mikilla opinberra skulda Evrópuþjóða.

Seðlabanki Evrópu lækkaði stýrivexti sína úr 1 prósenti í 0,75 prósent í síðasta mánuði með það að markmiði að styðja við hagvöxt.

Sjá má yfirlýsingu Seðlabanka Bandaríkjanna hér, og umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC um Seðlabanka Evrópu, og hugsanlega aðgerðir hans til þess að lækka skuldaálag Spánar, hér.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×