Íslenski boltinn

Þjálfari KA fór ekki eftir fyrirmælum dómara

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Sævar Pétursson, sem dæmdur var í mánaðarlangt bann af KSÍ í vikunni, fór ekki eftir fyrirmælum dómara þegar honum var vikið af velli.

Sævar er þjálfari 4. flokks KA og var að stýra B-liði sínu í leik gegn Breiðabliki þann 27. júní síðastliðin þegar málið kom upp. Hann mótmælti marki sem Breiðablik skoraði og fékk fyrir það rautt spjald.

Fram kemur í yfirlýsingu sem þjálfarar KA sendu frá sér að Sævar hafi komið sér fyrir á meðal áhorfenda en að dómari leiksins hafi beðið hann um að yfirgefa það svæði einnig. Því hafi Sævar neitað og því hafi leikurinn verið flautaður af.

Yfirlýsinguna má lesa í heild sinni hér:

„Vegna umfjöllunar sem hefur átt sér stað vegna leiks Breiðabliks og KA í 4 fl.kk þann 27.6 síðastliðinn þá viljum við koma eftirfarandi á framfæri:

Er leikmaður KA Kristján Karl Randversson fékk beint rautt spjald á 25 mín leiksins þá mótmæltu foreldrar og þjálfari KA eins og gengur og gerist enda ekki á hverjum degi sem leikmaður í yngri flokkum á Íslandi fær beint rautt spjald.

Í upphafi seinni hálfleiks þá skorar Breiðablik eftir umdeilt atvik og aftur eiga sér stað mótmæli. Að þeim loknum tjáir dómari leiksins Sævari Péturssyni að hann fái rautt spjald og þurfi að yfirgefa völlinn.

Sævar kemur sér fyrir þar sem foreldrar KA-drengjanna standa og hyggst horfa á leikinn þaðan en dómari leiksins krefst þess að Sævar yfirgefi það svæði. Sævar hins vegar neitar því, enda á sama stað og aðrir áhorfendur leiksins. Í framhaldi af þvi flautar dómari leiksins leikinn af.

Allt tal um eitthvað ofbeldi eða ofsafengin viðbrögð, dónaskap eða þaðan af verra að leik loknum vísum við til föðurhúsanna enda búnir að vera í fótboltanum í fjölda ára og oft orðið vitni að mun verri framkomu bæði þjálfara og foreldra.

Hörmum við þessa niðurstöðu en hún verður samt ekki til að skyggja á samstarf Breiðabliks og KA sem hefur verið til fyrirmyndar.

Steingrímur Eiðsson Þjálfari KA

Sævar Pétursson Þjálfari KA"




Fleiri fréttir

Sjá meira


×