Íslenski boltinn

Tvö mörk í lokin tryggðu Víkingum sigur á Þór

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Halldór Smári og félagar er í góðu stuði þessa dagana.
Halldór Smári og félagar er í góðu stuði þessa dagana. Mynd / Anton
Víkingar nýttu sér meðbyrin eftir frækinn sigur á Fylki í Borgunarbikarnum í vikunni og sóttu þrjú stig norður yfir heiðar í kvöld gegn Þór.

Markalaust var þar til á 78. mínútu þegar Aron Elís Þrándarson kom Fossvogsbúum yfir. Fjórum mínútum fyrir leikslok innsiglaði Patrik Snær Atlason sigur Víkinga.

Sigurinn var kærkominn fyrir þá rauðu og svörtu sem eru komnir með tíu stig að loknum átta leikjum. Þórsarar eru með 13 stig í öðru sæti en leikurinn var sá fyrsti í áttundu umferð.

Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×