Íslenski boltinn

Magnús Páll hetja Hauka í sigri á ÍR

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Magnús Páll í leik með Breiðabliki.
Magnús Páll í leik með Breiðabliki.
Framherjinn Magnús Páll Gunnarsson skoraði bæði mörk Hauka í 2-1 sigri á ÍR í 8. umferð 1. deildar karla en leikið var á Ásvöllum í kvöld.

Magnús Páll kom heimamönnum yfir á 40. mínútu og þannig stóðu leikar í hálfleik. Viggó Kristjánsson jafnaði metin fyrir ÍR í upphafi síðari hálfleiks.

Magnús Páll var hins vegar aftur á ferðinni á 64. mínútu og tryggði Hafnfirðigum stigin þrjú.

Eftir sigurinn eru Haukar komnir upp að hlið Fjölnis í efsta sæti deildarinnar með 15 stig en lakara markahlutfall.

ÍR-ingar eru áfram með 11 stig í 5. sæti deildarinnar. Fyrr í kvöld vann Víkingur 2-0 sigur á Þór norðan heiða.

Umferðinni lýkur á morgun með fjórum leikjum.

Klukkan 14

Leiknir - Tindstóll

Þróttur - KA

Víkingur Ólafsvík - BÍ/Bolungarvík

Klukkan 16

Höttur - Fjölnir

Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×