Fanndís meiddist gegn Stjörnunni | Gæti misst af Ungverjaleiknum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 12. júní 2012 17:00
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, segir óvíst hvort Fanndís Friðriksdóttir geti leikið gegn Ungverjum á laugardaginn. Fanndís meiddist á kvið í 2-2 jafntefli Breiðabliks og Stjörnunnar í Pepsi-deild kvenna í gær. „Fanndís fór á slysadeildina með sjúkrabíl eftir leikinn. Hún fékk þungt högg framan á kviðinn og fann fyrir miklum sársauka. Hún var send heim eftir skoðun og fór til okkar læknis í dag," segir Sigurður Ragnar sem segir líðan Fanndísar mun betri í dag. „Við þurfum þó að fara varlega og sjá hvernig batinn heldur áfram. Það verður að koma í ljós hvort hún geti spilað," segir Sigurður Ragnar en nokkuð er um meiðsli í herbúðum landsliðsins. Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður Djurgården er frá vegna meiðsla en Sandra Sigurðardóttir, markvörður Stjörnunnar, kom inn í hópinn í hennar stað. Þá hefur Hallbera Guðný Gísladóttir, leikmaður Piteå, glímt við meiðsli aftan í læri. Hún kom til landsins í gær og verður í umönnun hjá sjúkraþjálfara landsliðsins í dag. „Ég held það sé á mörkunum hvort hún nái leiknum en það eru miklu meiri líkur á að hún nái seinni leiknum," segir Sigurður Ragnar. Íslenska landsliðið mætir Ungverjum á Laugardalsvelli á laugardaginn í undankeppni Evrópumótsins. Leikurinn hefst klukkan 16.30.
Fótbolti Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ísland í hópi með Norður-Kóreu og Íran“ Sport Alfreð klæddist kvennatreyjunni á leiknum við Ísland Handbolti Dönsk landsliðskona eignaðist barn tólf vikum fyrir tímann Handbolti Loksins þorði einhver í Kolbein sem stígur aftur inn í hringinn Sport Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta Íslenski boltinn „Búnt á skenkinn, Halli Egils á vegginn“ Sport Kærastan tók eftir því að eitthvað var að Handbolti Forðuðu sér frá bráðsmitandi óléttu í Fram Handbolti Segir allt tal um leiðinlegan fótbolta hjá Arsenal heimskulegt Enski boltinn Viðtökurnar á Anfield munu ekki breyta neinu Fótbolti Fleiri fréttir Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Gísli semur við Skagamenn Óskar Smári tekur við Stjörnunni Bretinn ráðinn tæknilegur ráðgjafi hjá Val Fram þvertekur fyrir metnaðarleysi og leitar að nýjum þjálfurum Tölur úr Bestu: Hallgrímur Mar bjó til langflest færi „Mjög sáttur með samninginn“ „Hefði séð eftir því alla ævi“ Magnús Már í viðræðum við HK Uppgjörið: Ísland - Norður-Írland 3-0 | Áfram hluti af elítunni Tölur úr Bestu 2025: Klúðraði langflestum dauðafærum í sumar FH bíður með að tilkynna nýjan þjálfara Óskar Hrafn fer ekki fet Birnir frá Akureyri í Garðabæ Hættir með Fram Heimir kynntur til leiks í Árbænum Túfa rekinn frá Val Leyndarmáli ljóstrað upp þegar Heimir og Björn kvöddu Leikmenn kusu Patrick og Guðmund Sjáðu bananabombu Antons Loga og önnur síðustu mörk tímabilsins Uppgjörið: Stjarnan - Breiðablik 2-3 | Stjarnan í Evrópu þrátt fyrir tap „Held að ég geti ekki gert mikið meira“ Uppgjörið: Vestri - KR 1-5 | KR bjargaði sér og sendi Vestra í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - Afturelding 1-0 | Afturelding staldraði stutt við í efstu deild Sjá meira