Heimsfriðurinn baðst afsökunar en má eiga von á þungri refsingu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2012 23:45
Metta World Peace, áður Ron Artest, sýndi gamalkunna takta þegar hann gaf James Harden svakalegt olnbogaskot í leik LA Lakers og Oklahoma City Thunder í NBA-deildinni í gær. Artest breytti nafni sínu í World Peace í september á síðasta ári en óhætt er að segja að hann hafi ekki staðið undir nafni sem friðarsinni í leiknum í gær, eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Artest var þá að fagna eigin troðslu og ákvað um leið að gefa Harden afar þungt högg í andlitið með olnboganum. World Peace baðst afsökunar eftir leikinn en sagði að um óviljaverk hefði verið að ræða. Hann skrifaði svo eftirfarandi á Twitter-síðuna sína: „I just watched the replay again..... Oooo.. My celebration of the dunk really was too much... Didn't even see James ..... Omg... Looks bad." Úrslitakeppnin hefst á laugardaginn og má búast við því að World Peace verði úrskurðaður í langt bann. Það á eftir að koma í ljós hversu langt bannið verður en gera má ráð fyrir því að það verði talsvert styttra en 86 leikja bannið sem hann fékk í nóvember árið 2004 fyrir að slást við áhorfendur.
Dominos-deild karla Mest lesið Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Verður einn sá dýrasti í sögu KR Íslenski boltinn „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira