Kappakstur í skugga mótmæla og óeirða Birgir Þór Harðarson skrifar 19. apríl 2012 06:00
Barein kappaksturinn fer fram um helgina eftir að talsverð óvissa hefur ríkt um hvort mótið verði eða ekki. Tvö ár eru liðin síðan keppt var í Barein síðast því kappakstrinum var aflýst í fyrra vegna gríðarlegra mótmæla í þar í landi. Íbúar í Barein hafa nú mótmælt stjórnvöldum í rúmt ár en stjórnvöld hafa ekki gert mikið til að koma til móts við mótmælendur. Þau hafa raunar mætt andstöðunni af nokkurri hörku. Ekki er vika liðin síðan óeirðalögregla í úthverfum höfuðborgarinnar Manama skaut 15 ára dreng til bana. Mótið fer engu að síður fram og eru liðin mætt til Barein með allan sinn búnað og eru byrjuð að stilla sér upp við brautina. Síðast þegar keppt var á Sakhir-brautinni sigraði Fernando Alonso á Ferrari bíl sínum, á undan liðsfélaga sínum Felipe Massa. Fyrst var keppt í Barein árið 2004 og var það fyrsta sinn sem keppt var í löndunum við Persaflóa. Brautin var hönnuð af Herman Tilke, sem hefur hannað margar brautir sem notaðar eru í Formúlu 1 nútímans. Brautin er í eyðimörkinni í Barein sem er reyndar ekki mjög stórt land. Barein er eyja rétt fyrir utan strönd Sádí Arabíu og Katar. Brautin er staðsett um það bil 30 kílómetrum sunnan við höfuðborgina Manama. Vegna þess að hún er staðsett í eyðimörk er hún þar af leiðandi frekar skítug og gripið ekki mikið. Brautin var raunar aðeins öðruvísi og lengri árið 2010. Millikafli brautarinnar var hægur og flókinn, bauð ekki upp á mörg framúraksturstækifæri en dró fram hæfileika ökuþóranna vegna þess hversu frábrugðinn kaflinn var frá restinni af brautinni. Sjá má skyggð svæði á brautarkortinu sem fylgir þessari greiningu og ef rýnt er í kortið sést kaflinn flókni á milli beygja 4 og 5. Mikilvægustu svæðin á þessari braut eru beygjur fjögur og tíu. Beygja fjögur er nokkuð einföld en kröpp hægribeygja. Þetta er tilvalið framúrakstursvæði ef einhver er nógu hugrakkur til að bremsa örlítið seinna fyrir utan aksturslínuna. Beygja tíu er nokkuð flókin. Að henni er komið og bremsað í miðri brekkunni i beygju níu og alveg niður að beygju 10. Auðvelt er að gera mistök á þessum kafla ef maður gerist of graður.DRS svæði: Á ráskaflanum öllum. Skynjarinn er staðsettur rétt fyrir beygju 14. Dekkjagerðir í boði: Mjúk (option) og miðlungs (prime) Efstu þrír árið 2010: 1. Fernando Alonso - Ferrari 2. Felipe Massa - Ferrari 3. Lewis Hamilton - McLaren Allt mótið er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Föstudagur: 07:00 Æfing 1 11:00 Æfing 2 Laugardagur: 07:55 Æfing 3 10:50 Tímataka Sunnudagur: 11:40 Barein kappaksturinn Staðan í titilbaráttunni eftir þrjár umferðirÖkumenn 1. Lewis Hamilton - 45 stig 2. Jenson Button - 43 3. Fernando Alonso - 37 4. Mark Webber - 36 5. Sebastian Vettel - 28 6. Nico Rosberg - 25 7. Sergio Perez - 22 8. Kimi Raikkönen - 16 9. Bruno Senna - 14 10. Kamui Kobayashi - 9Bílasmiðir 1. McLaren - 88 stig 2. Red Bull - 64 3. Ferrari - 37 4. Sauber - 31 5. Mercedes - 26
Formúla Mest lesið Fantasýn: Bogi Nils þarf að vara sig og ekkert breyst hjá stjórnarformanni Play Enski boltinn Baulað á Figo í Barcelona: „Portúgalinn er ekki velkominn hér“ Fótbolti „Ótrúlega gaman að sjá þessa stelpu dafna“ Íslenski boltinn Bjarni Jó kveður Selfoss Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - Valur 79-88 |Frábær endurkomusigur hjá Val Körfubolti Dagskráin í dag: Skiptiborðið og Blikar í Evrópu Sport Valur vann stigalausu Stjörnuna Handbolti De Bruyne lagði tvisvar upp fyrir Højlund Fótbolti „Ég myndi frekar vilja vinna svona en að vera yfir allan leikinn“ Sport Evrópumeistararnir með endurkomusigur gegn Barcelona Fótbolti Fleiri fréttir Segir ákvörðunina þá erfiðustu sem hann hafi tekið Tekur marga milljarða með sér og gæti snúið aftur með öðru liði Verstappen vann og Piastri úr leik á fyrsta hring Verstappen á ráspól eftir skrautlega tímatöku Norris fljótastur á síðustu æfingu í Baku Piastri sagt að hleypa Norris fram úr en Verstappen vann Verstappen á ráspól með hraðasta hring sögunnar Sjá meira