Formúla 1

Raikkönen segir Lotus skorta heppni

Birgir Þór Harðarson skrifar
Kimi líður eins og hann sé velkominn hjá Lotus en segir liðið sitt skorta örlitla heppni til að geta staðið í toppbaráttunni.
Kimi líður eins og hann sé velkominn hjá Lotus en segir liðið sitt skorta örlitla heppni til að geta staðið í toppbaráttunni. nordicphotos/afp
Kimi Raikkönen segir Lotus liðið og vinnuveitendur sína hafa það sem þarf til að taka þátt í toppbáráttunni í ár. Fyrstu tvö mótin hafa hins vegar verið erfið fyrir liðið.

Kimi gefst þó ekki upp og er viss um að ef Lotus eigi eðlilega helgi þar sem ekkert kemur uppá geti þeir barist framarlega.

"Bryrjunin er búin að vera hvetjandi þó hún hafi verið pirrandi," sagði Kimi. "Bíllinn hefur verið okkur til vandræða á æfingum og svo gerði ég mistök í tímatökum í Ástralíu og þurfti að skipta um gírkassa í Malasíu. Við höfum samt sýnt að við ráðum við þessi vandamál og komum til baka sterkari."

"Mér líður eins og ég hafi aldrei verið í burtu frá Formúlu 1. Mér líður strax eins og ég sé kominn heim."

Liðsfélagi Kimi hefur sýnt góða takta í tímatökum fyrir fyrstu tvö mótin en ekki lokið nema þremur hringjum í mótum ársins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×