Ronaldo getur tekið met af Púskas í kvöld Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. mars 2012 18:45 Cristiano Ronaldo. Mynd/Nordic Photos/Getty
Cristano Ronaldo, leikmaður Real Madrid, vantar nú aðeins tvö mörk í það að skora sitt hundraðasta deildarmark fyrir Real en Ronaldo sem er á þriðja tímabili með félaginu hefur skorað 98 mörk í 90 leikjum í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Real Madrid mætir Villareal klukkan 20.30 í kvöld í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Lionel Messi skoraði þrennu fyrir Barcelona í gær og er þar með orðinn markahæsti leikmaður spænsku deildarinnar með 34 mörk en þar sem þeir félagar hafa jafnan skipts á því að eiga stórleiki þá búast menn við miklu af Ronaldo í kvöld. Skori Ronaldo tvö mörk á móti Villareal þá bæti hann félagsmet Ference Púskas. Ungverski snillingurinn skoraði sitt hundraðasta deildarmark fyrir Real í leik númer 105. Ronaldo er reyndar búinn að missa af metinu í spænsku deildinni en Isidro Lángara Galarraga, sem lék með Real Oviedo á fjórða áratug síðustu aldar, skoraði hundraðasta markið sitt í leik númer 82. Cristano Ronaldo hefur skorað 32 mörk í 27 leikjum í spænsku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en hann var búinn að skora í fimm deildarleikjum í röð þegar honum mistókst að skora í 1-1 jafntefli á móti Malaga um síðustu helgi.
Spænski boltinn Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Spila að eigin ósk í sömu litum og í leiknum fræga með „hendi guðs“ Fótbolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti Valur bætir við sig fyrrum markadrottningu úr Lengjudeildinni Íslenski boltinn Kastaði skó í mótherja í miðjum leik Körfubolti „Ég sef í bílnum ef ég þarf“ Golf Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Xabi Alonso vill halda Fernandez hjá Chelsea Nýr stjóri Liverpool segist þurfa fleiri leikmenn United kaupir Andrey Santos frá Chelsea Villa að stela Manzambi af Newcastle Éderson ekki á leiðinni en Tielemans í viðræðum við United Ken Bates látinn Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Sjá meira