Íslenski boltinn

Guðbjörg vill nýja bolta

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðbjörg á landsliðsæfingu árið 2009.
Guðbjörg á landsliðsæfingu árið 2009. Mynd/Anton
Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður í fótbolta, er ekki ánægð með þá bolta sem landsliðið fær að æfa með á Algarve í Portúgal.

„Hvernig væri að KSI myndi fjárfesta í nýjum boltum! Hefði haldið það væri til peningur fyrir því #ksi #fotbolti," skrifaði hún á Twitter-síðuna sína í dag.

Ísland hefur keppni á Algarve-æfingamótinu á morgun og mætir þá Þýskalandi. Ísland komst í úrslitleik keppninnar í fyrra en tapaði þá fyrir Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×