Umfjöllun og viðtöl: Grótta – Akureyri 19-28 Kolbeinn Tumi Daðason á Nesinu skrifar 9. febrúar 2012 15:26 Mynd/Valli
Akureyri vann öruggan sigur á Gróttu á Seltjarnarnesinu í kvöld. Lokatölurnar urðu 19-28 og var sigur gestanna aldrei í hættu. Akureyringar halda því 5. sætinu að loknum 14. umferðum en Grótta er enn á botninum í leit að sínum fyrsta sigri. Norðanmenn mættu mun ákveðnari til leiks. Þeir náðu forskoti snemma sem þeir héldu en þó voru heimamenn aldrei langt undan. Sóknarleikur heimamanna var á köflum vandræðalegur og lauk mörgum hverjum með erfiðum skotum. Staðan í hálfleik 9-13 og báðir markverðirnir með um 50 prósent markvörslu. Í síðari hálfleiknum náðu heimamenn aldrei að anda nægilega ofan í hálsmálið á Akureyringum. Munurinn varð minnstur fjögur mörk og í lokin gátu Norðanmenn leyft minni spámönnum að spreyta sig. Síðustu mínútur leiksins voru svo í skrautlegri kantinum þar sem liðin töpuðu boltanum á víxl í hröðum upphlaupum og röðuðu inn mörkunum. Lokatölurnar urðu 19-28 gestunum í vil en munurinn full stór miðað við gang leiksins. Markverðir beggja liða áttu fínan dag í kvöld en það var sóknarleikur heimamanna sem varð þeim að falli. Hann var alltof tilviljanakenndur auk þess sem liðið tapaði boltanum ítrekað á klaufalegan hátt. Bjarni Fritzson: Menn þurfa að hætta að meiðast„Við vorum klárir á því að þetta yrði mjög erfiður leikur. Við erum að berjast eins og við getum að komast í úrslitakeppnina. Fyrir bæði lið voru þessi stig gríðarlega mikilvæg. Þeir áttu ekkert að mæta vitlausari en við í þennan leik," sagði Bjarni sem skoraði tólf mörk í leiknum og nýtti vítin sérstaklega vel. „Já, ég er búinn að vera að klára færin vel upp á síðkastið. Strákarnir voru að finna mig ágætlega. Ég reyni að nýta færin eins vel og ég get og það gengur ágætlega," sagði Bjarni. Heimir Örn Árnason kom ekkert við sögu í leiknum í dag. Heimir hefur verið frá um tíma vegna meiðsla en spilaði þó í tapleiknum gegn HK í síðustu umferð. „Hann er að reyna að koma sér í stand. Hann var kannski ekki klár í HK-leikinn, byrjaði of snemma. Þetta tekur smá tíma. Hann hafði bara mætt á tvær æfingar fyrir HK-leikinn. Það var kannski fullsnemmt en við þurftum á honum að halda. Sem betur fer gat hann hvílt í dag." Bjarni segir sína menn í fínum málum. Liðið hefur náð í þrettán af síðustu sextán stigum en menn verði að halda áfram að berjast.. „Það eru sex frábær lið að berjast um sætin, deildin gríðarlega jöfn og erfiðir leikir eftir. Það væri heimska að hugsa um eitthvað annað," sem hefur þó trú á sínum mönnum í framhaldinu komist liðið í úrslitakeppnina. „Já, við eigum fullt inni og erum með mjög gott lið. Menn þurfa að hætta að meiðast í smá stund, ná sér í stand, ná betri takti og samspili. Þá verðum við mjög hættulegir." Lárus Helgi: Öll ljós kveikt en enginn heimaLeit Gróttumanna að fyrsta sigrinum heldur áfram en liðið er einmana á botni deildarinnar með eitt stig. „Þetta kom ekki í dag. Seinni hálfleikur var arfaslakur hjá okkur. Ef ég ætti að lýsa honum þá voru öll ljós kveikt en engin heima. Menn voru á staðnum en eins og vofur. Tókum bandvitlausar ákvarðanir," sagði Lárus sem átti fínan leik í marki heimamanna. „Mér fannst munurinn eiga að vera minni í hálfleik en svona er þetta. Við höldum áfram." „Þessar tölur gefa ekki rétta mynd af leiknum. Hann átti aldrei að tapast með meira en fjórum til fimm mörkum. Það er eitthvað sem vantaði hjá okkur í þessum leik," sagði Lárus sem taldi muninn hafa átt að vera minni í hálfleik þegar hann var ánægður með frammistöðu síns liðs. Grótta er fimm stigum á eftir Aftureldingu þegar þetta er ritað en Mosfellingar etja kappi við Fram sem stendur. „Við skulum biðja til guðs að þeir vinni ekki. Geri þeir það þá er þetta orðið rosalega svart. En við þurfum að taka þrjá leiki, vinna þá, þannig að það er alveg geranlegt," sagði Lárus Helgi sem segir góða stemmningu hjá Gróttumönnum. „Já, það er hörkufjör á æfingum og flottur hópur. Það er fínn andi hjá okkur þó staðan sé svona."
Olís-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Sjá meira