Viðskipti erlent

Sala á Bentley jókst um 37%

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Sala á Bentley gengur býsna vel.
Sala á Bentley gengur býsna vel. mynd/ afp.
Framleiðandi lúxusbílanna Bentley segir að sala á bílunum hafi aukist um 37% á síðasta ári. Eftirspurn sé nú orðin álíka mikil og hún var áður en efnahagssamdrátturinn byrjaði árið 2008. Um 7000 bílar seldust í fyrra. Aðalmarkaðurinn fyrir bílana er í Bandaríkjunum. Þar seldust 2021 bíll og jókst salan um 32%.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×