Golf

Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á árinu 2011

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Tiger Woods er mættur á Torrey Pines og ætlar sér stóra hluti.
Tiger Woods er mættur á Torrey Pines og ætlar sér stóra hluti. AP

Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á árinu 2011 en árið 2010 var ekki gott ár hjá kylfingnum. Hann náði ekki að sigra á atvinnumóti í fyrsta sinn frá því hann gerðist atvinnumaður og einkalíf hans var aðalfréttaefnið þar sem upp komst um framhjáhald hans.

Woods er á meðal keppenda á PGA móti sem fram fer á Torrey Pines vellinum í San Diego og hann sagði við blaðamenn í gær að tilhlökkun einkenndi upphaf keppnistímabilsins. „Ég hlakka til að komast út á völl til þess að keppa og finna fyrir spennunni sem því fylgir," sagði Woods í gær. Hann sigraði með eftirminnilegum hætti á opna bandaríska meistaramótinu árið 2008 á Torrey Pines og er þetta í fyrsta sinn sem hann keppir á þessum velli frá þeim sigri.

Woods hefur ekki sigrað á golfmóti frá því hann fagnaði sigri á ástralska meistaramótinu árið 2009. „Ég hef slegið þúsundir af golfboltum á undanförnum mánuðum. Æft meira en ég gerði á árinu 2010 og ég hef aldrei púttað eins illa og á síðasta ári," sagði Woods en hann hefur breytt sveiflunni í fjórða sinn á ferlinum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×