Mistök að hafa Grikkland með 29. október 2011 00:00 Nicolas Sarkozy í sjónvarpsviðtali „Nú erum við að greiða fyrir afleiðingarnar.“ nordicphotos/AFP
Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti segir það hafa verið mistök að leyfa Grikkjum að taka upp evruna strax árið 2001. Grísk stjórnvöld hafi ekki verið reiðubúin og að auki beitt blekkingum í ríkisbókhaldinu til að fegra stöðuna. „Þetta var ákvörðun sem var tekin held ég árið 2001, og nú erum við að greiða fyrir afleiðingarnar,“ sagði Sarkozy í sjónvarpsviðtali á fimmtudagskvöld, en nóttina áður höfðu leiðtogar evrusvæðisins komið sér saman um nýjan björgunarpakka fyrir Grikkland og önnur nauðstödd evruríki. Hann sagði þó að björgunarpakkinn muni duga Grikkjum til að komast út úr vandanum. Með þessari ákvörðun hafi evruríkin komið í veg fyrir hamfarir á evrusvæðinu. Grísk stjórnvöld hafa mótmælt orðum Sarkozys. Þau segja ekkert hæft í því að orsaka kreppunnar sé að leita í Grikklandi. „Grikkland er í miðjum storminum,“ sagði Stavros Lambrinidis, utanríkisráðherra Grikklands, í viðtali við breska útvarpið BBC. „Það hjálpar ekkert að gera eitt land að blóraböggli þegar tekist er á við evrópskt vandamál.“- gb
Fréttir Mest lesið Samfélagið í Árbæ harmi slegið vegna andláts Maciej Innlent Tuga kílómetra slóð á hafsbotni hjá skemmda sæstrengnum Erlent Farþegar heyrðu mikinn hvell við flugtak og vélinni nauðlent Erlent Vita ekki hvenær þau komast heim með líkamsleifar drengsins síns Innlent María Kristjánsdóttir er látin Innlent Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2024 Innlent Snjóþekja og skafrenningur gætu sett strik í reikninginn Innlent Ákall eftir réttmætari dreifingu á arði Innlent Öflugasta eftirlit í áratugi veltur á fjármögnun stjórnvalda Innlent „Mjög margir sem gleyma því og eru þá eins og beljur á svelli“ Innlent Fleiri fréttir Vöruðu við fuglum rétt fyrir slysið Skiptast á 300 föngum Fimm ákærðir í tengslum við andlát Liam Payne Farþegar heyrðu mikinn hvell við flugtak og vélinni nauðlent Tuga kílómetra slóð á hafsbotni hjá skemmda sæstrengnum Þetta orsakaði kuldabola sem herjaði á íbúa Nuuk Rannsaka flugflotann í kjölfar slyssins Uppskerubrestur og þungar horfur vegna veðurofsans Jimmy Carter látinn Sjö daga þjóðarsorg lýst yfir í Suður-Kóreu Urðu úti við leit að Stórfæti Smábarn einu skrefi frá því að falla fram af bjargi hjá eldgosi Olivia Hussey er látin Neyðarástand í Nuuk vegna straumleysis Fjöldi látinn eftir flugslys í Suður-Kóreu Forstjóri sjúkrahúss meðal 240 handtekinna Minnst fimmtán áfrýja í máli Pelicot Biðst afsökunar á „hörmulegu atviki“ Íslandsvinurinn OG Maco látinn Tveir látnir eftir skotbardaga í Noregi „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Sjá meira