Fjármálaráðherra segir af sér 27. september 2011 00:00 Pútín og Medvedev
Fjármálaráðherra Rússlands, Alexei Kúdrín, sagði af sér embætti í gær. Kúdrín gagnrýndi efnahagsstefnu Dimitrís Medvedev forseta landsins um helgina, eftir að fréttir bárust af því að Medvedev og Vladimír Pútín hygðust skiptast á embættum í forsetakosningum í mars næstkomandi. Kúdrín lét hafa eftir sér að hann myndi ekki starfa í ríkisstjórn undir stjórn Medvedevs. Hann hefur verið fjármálaráðherra frá árinu 2000 og er virtur bæði heima og heiman. Medvedev brást ókvæða við ummælum Kúdríns og sagði þau óréttlætanleg. Hann gaf ráðherranum frest til loka gærdagsins til að segja af sér. Sérfræðingar telja að Kúrdín hafi sjálfur vonast til að verða forsætisráðherra að loknum þingkosningum í desember. Afsögn hans veldur erlendum fjárfestum áhyggjum, en hann hefur vakið athygli fyrir aðgerðir sínar til að bjarga olíuauði ríkisins árið 2008. Pútín gæti orðið forseti í tvö kjörtímabil til viðbótar ef hann nær kjöri. Hann yrði þá þaulsetnasti forseti landsins síðan Stalín réði ríkjum í Sovétríkjunum. - þeb
Fréttir Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september „Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Sjá meira