Endurvekja gamalt markaðstorg 16. júlí 2011 12:00 óðinstorg hefur gengið í gegnum yfirhalningu áður eins og myndin sýnir.
Endur-skoðendur borgarinnar er hópur sem hefur tekið að sér að lífga upp á torgin í Reykjavíkurborg í sumar. Hópurinn hefur þegar hafist handa við að betrumbæta Óðinstorg þar sem bílastæðum var lokað og í staðinn verða haldnir alls kyns markaðir á torginu í sumar. „Hugmynd hópsins var að endurvekja Óðinstorg sem markaðstorg og gera það að skemmtilegum samkomustað fyrir borgarbúa,“ útskýrir Hjördís Sóley Sigurðardóttir, einn af meðlimum hópsins en hann samanstendur af tveimur arkitektum, myndlistarnema og bókmenntafræðinema. Torgið hefur nú verði málað og tyrft og mublur og leiktæki búin til úr stórum keflum. Fyrsti markaður sumarsins fer fram í dag í samstarfi við verslunina Frú Laugu og geta gestir og gangandi keypt ýmis matvæli, blóm og heilsusafa og hafa íbúar í grennd við torgið einnig beðið um að fá að taka þátt. „Það hefur verið mjög skemmtilegt að taka vannýtt svæði og breyta því til hins betra. Við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð frá íbúum hverfisins sem hafa margir komið til okkar og lýst yfir ánægju með verkefnið,“ segir Hjördís að lokum glaðlega. Markaðurinn við Óðinstorg hefst klukkan 10.00 og stendur til klukkan 17.00.-sm
Lífið Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira