Lífið

Hljóðrituðu átta smelli

Magnús og Jóhann ásamt hljóðfæraleikurunum Kristni Snæ Agnarssyni, Jóni Ólafssyni, Stefáni Magnússyni og Eiði Arnarssyni á meðan á upptökunum stóð. Fréttablaðið/Daníel
Magnús og Jóhann ásamt hljóðfæraleikurunum Kristni Snæ Agnarssyni, Jóni Ólafssyni, Stefáni Magnússyni og Eiði Arnarssyni á meðan á upptökunum stóð. Fréttablaðið/Daníel
Gömlu félagarnir Magnús og Jóhann skelltu sér í hljóðver á dögunum og tóku upp átta lög. Magnús segir að upptökurnar hafi gengið vel.

„Þetta var mjög skemmtilegt," segir tónlistarmaðurinn Magnús Þór Sigmundsson.

Upptökum er lokið á átta lögum sem verða á safnplötu Magnúsar Þórs og Jóhanns Helgasonar sem verður gefin út í vor í tilefni af fjörutíu ára samstarfi þeirra.

Tvö laganna eru ný og hafa þau fengið vinnuheitið Vor og Lífið. Hin lögin eru gömul eftir þá kumpána sem aðrir söngvarar hafa gert vinsæl, þar á meðal Ég labbaði í bæinn sem Vilhjálmur Vilhjálmsson söng á eftirminnilegan hátt. Einnig tóku þeir upp Ég gef þér allt mitt líf sem Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir gerðu vinsælt, Þú ert mér allt sem Ellen Kristjánsdóttir söng, Play Me sem Þórunn Antonía, dóttir Magnúsar flutti, Keflavíkurnætur sem Jóhann og Rúnar Júlíusson sungu og Seinna meir sem Eiríkur Hauksson og félagar í Start gerðu vinsælt.

„Við tókum skemmtilegan vinkil á þessi lög. Okkur tókst vel að taka þau upp og syngja," segir Magnús Þór.

„Þetta lagðist allt saman mjög ljúft niður."

Á safnplötunni verða fjörutíu lög, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Auk fyrrnefndu laganna verða þar Ástin og lífið og Blue Jean Queen sem eru á meðal vinsælustu laga Magnúsar og Jóhanns. Útgáfutónleikar í tilefni plötunnar eru fyrirhugaðir í Austurbæ í byrjun maí.

freyr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×