Lífið

Halda tónleika fyrir bágstadda

„Þetta er málefni sem snertir okkur öll," segir MR-ingurinn Ragnheiður Björk Halldórsdóttir.

Skólarnir MH, MR, MS, Kvennó og Verzló standa fyrir góðgerðartónleikunum SamFram í Hafnarhúsinu í kvöld. Ágóði tónleikanna rennur til Mæðrastyrksnefndar en með framtakinu vilja nemendurnir leggja áherslu á að þeim er ekki sama.

„Þeim heimilum sem hefur þurft að sækja sér hjálp til Mæðrastyrksnefndar hefur fjölgað alveg gríðarlega. Fyrir hrun voru að meðaltali 60-80 heimili sem sóttu sér hjálp vikulega, en rétt fyrir jól voru heimilin orðin um 700," segir Ragnheiður.

Skólarnir fimm skipa hópinn SamFram og hittast fulltrúar á vegum hans reglulega og bera saman bækur sínar.

„Undanfarið höfum við séð slæma umfjöllun um unglinga og við viljum bæta hana. Einu fréttirnar sem við fáum af unglingum eru neikvæðar. Ungt fólk er í ruglinu, áfengismælar á böllum, léleg umgengni um mötuneytin og annað. Þetta er ekkert svona. Við viljum bæta ímynd okkar út á við og okkur er ekkert sama um það hvernig staðan er í dag."

Tónleikarnir fara fram í Hafnarhúsinu og hefjast þeir klukkan átta, en fram koma Friðrik Dór, Jón Jónsson, Agent Fresco, Who Knew, Original Melody, Orphic Oxtra, Gnúsi Yones og Stebbi og Eyfi. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á slóðinni www.valdiogfreyr.is og geta allir fylgst með en Talsímafélag Valda & Freys er aðalstyrktaraðili tónleikanna.

Þeir sem hafa áhuga á að leggja málefninu lið geta hringt í númerið 907-1050 og gefið þar með kr. 500 eða í 907-1000 og gefið kr. 1000. -ka






Fleiri fréttir

Sjá meira


×