Greip inn í fíkniefnaviðskipti 22. febrúar 2011 02:00 Maríjúana Lögregla stöðvaði kannabisræktun og fíkniefnaviðskipti um helgina.
Lögreglan á Akureyri stöðvaði kannabisræktun í íbúð á Akureyri um helgina. Hald var lagt á fjórtán kannabisplöntur, nokkra græðlinga og búnað til ræktunar. Við leit í íbúðinni var síðan lagt hald á um tuttugu grömm af maríjúana sem er talið vera afgangur af fyrri ræktun á sama stað. Tveir menn á þrítugsaldri viðurkenndu við yfirheyrslur að hafa staðið að ræktuninni. Á laugardaginn gripu svo lögreglumenn inn í fíkniefnaviðskipti sem áttu sér stað á miðri íbúðargötu á Akureyri. Þrír aðilar voru handteknir og í framhaldinu var framkvæmd húsleit á heimili þess sem var að selja efnin. Þar var lagt hald á um 70 til 80 grömm af maríjúana. Efninu hafði verið pakkað í sölueiningar og var falið á víð og dreif um íbúðina. Aðfaranótt sunnudags var lögreglan kvödd að fjölbýlishúsi í bænum vegna kvartana undan hávaða. Er lögregla kom á staðinn kom í ljós að fíkniefna hafði verið neytt. Þrír voru handteknir og smáræði af fíkniefnum var haldlagt, einnig tæki og tól til neyslu. Síðan var samkvæmið leyst upp. Öll málin teljast upplýst.- jss
Fréttir Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira