Pétur hættur með Hauka Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. nóvember 2011 19:20 Pétur Ingvarsson, fyrrverandi þjálfari Hauka. Mynd/Stefán
Pétur Ingvarsson, þjálfari Hauka í Iceland Express-deild karla, hefur ákveðið að segja starfi sínu lausu hjá félaginu. Þetta staðfesti Samúel Guðmundsson, formaður körfuknattleiksdeildar Hauka, í samtali við Vísi en fréttavefur Rúv greindi frá uppsögninni fyrr í kvöld. Samúel sagði að það hefði verið vilji stjórnarinnar að halda Pétri. „Hún lýsti fullum stuðningi við hann nú síðast í gær og þetta var ekki frá okkur komið," sagði Samúel. „Ég held að hann sé fyrst og fremst óánægður með gengi liðsins enda mikill keppnismaður. Við erum ekki komnir af stað með leit að eftirmanni hans en við erum þó með einhver nöfn í huga." „En það er alveg ljóst að það verður eftirsjá að Pétri," bætti Samúel við. Haukar eru í tíunda sæti deildarinnar með tvö stig af tíu mögulegum. Liðið tapaði fyrstu fjórum leikjum sínum á tímabilinu en vann svo Fjölni, 78-73, í síðustu umferð. Í Lengjubikarnum er liðið búið að vinna einn leik af þremur til þessa, einnig gegn Fjölni. Haukar töpuðu þó óvænt fyrir KFÍ á heimavelli, sem og fyrir Grindavík. Pétur þjálfaði áður lið Hamars en hætti með liðið á haustmánuðum 2007, eftir að liðið hafði unnið einn af fimm fyrstu leikjum sínum í deildinni það tímabilið - rétt eins og nú.
Dominos-deild karla Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég er oftast mjög rólegur“ Körfubolti „Ef þig vantar stoðsendingu þá bara gefur þú á hann“ Sport „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ Handbolti Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Körfubolti Fleiri fréttir „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ „Ég er oftast mjög rólegur“ Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Uppgjörið: Keflavík-Höttur 112-99 | Góður endasprettur Keflvíkinga Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Sjáðu slagsmálin í Síkinu Uppgjörið: Stjarnan-ÍR 102-96 | Loksins Stjörnusigur „Lið sem enginn vill mæta núna“ Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Martin fagnaði á móti Tryggva eftir spennuleik Uppgjörið: Tindastóll-Valur 45-72 | Stólarnir klesstu á Valsvegg Grindavíkurkonur áfram á sigurgöngu Elvar með stórleik í Evrópukeppninni Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Hætti við Lakers sökum hroka Kobe „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Bræður bættu stigamet pabba þeirra Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Uppgjörið: Álftanes-Keflavík 130-110 | Sóknarbolti á föstudagskvöldi Enn eitt áfallið fyrir Stjörnuna – Viktor meiddist illa Uppgjörið: Sindri-Tindastóll 71-78 | Frábær vörn Stólanna í lokin Brautryðjendur heiðraðir í Vesturbænum Einn nýliði í landsliðshópnum Sjá meira