Þórarinn Ingi og Hildur efnilegust Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 20. október 2011 17:29 Þórarinn Ingi og Hildur með verðlaunin sín í kvöld. Mynd/Valli
Efnilegustu leikmenn ársins í Pepsi-deild karla og kvenna eru að þessu sinni Þórarinn Ingi Valdimarson, ÍBV, og Hildur Antonsdóttir, leikmaður Vals. Þórarinn Ingi var lykilmaður í liði ÍBV sem endaði í þriðja sæti Pepsi-deildar karla eftir að hafa verið í toppbaráttunni allt til loka. Hildur þykir ein efnilegasta knattspyrnukna landsins um þessar mundir en hún varð bikarmeistari með Val nú í sumar. Hún er aðeins sextán ára gömul og kom við sögu í alls sautján leikjum í deild og bikar í sumar. „Auðvitað er þetta mikil viðurkenning heiður fyrir mig," sagði Þórarinn Ingi við Vísi eftir afhendinguna. „Það eru margir góðir leikmenn úr mínum aldursflokki sem spiluðu í sumar og margir sem áttu þetta líka skilið. En ég fékk þetta núna og er það ánægjulegt." ÍBV hefur endað í þriðja sæti Pepsi-deildarinnar tvö ár í röð og hefur liðið nú fengið nýjan þjálfara, Magnús Gylfason. Þórarinn Ingi segir að stefnan verði aftur sett á toppbaráttuna á næsta tímabili. „Það er kominn nýr þjálfari sem veit hvað þarf að bæta og styrkja í liðinu. Hann er með sín markmið og ég veit að þau eru að stefna eins ofarlega og mögulegt er." Hildur var ánægð með tímabilið sitt en segir að það hafi verið fúlt að missa af Íslandsmeistaratitlinum. „Þetta var erfitt tímabil en þetta var mitt fyrsta ár í meistaraflokki og fannst mér það mjög skemmtilegt. Það skemmir heldur ekki fyrir að hafa unnið þessi verðlaun - ég er mjög stolt af þeim."
Pepsi Max-deild karla Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira