Þorlákur: Vissum alveg að við værum ekkert að fara að klúðra þessu Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 30. ágúst 2011 22:21 „
Mér líður mjög vel," sagði Þorlákur Árnason, þjálfari Stjörnunnar eftir að stelpurnar hans höfðu tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Þetta er fyrsti stóri titill félagsins í meistaraflokki í fótbolta og hann kom á fyrsta ári Þorláks með liðið. „Við spiluðum við lið með mikið sjálfstraust og með markmann í banastuði. Þetta var erfið fæðing því við nýttum færin illa í kvöld. Seinni hálfleikurinn var góður og við héldum áfram að fá fullt, fullt af færum," sagði Þorlákur en Stjarnan skoraði fyrsta markið sitt á 48 mínútu. Síðustu tvö mörkin komu síðan ekki fyrr en í blálokin. „Þegar annað markið kom þá var þetta bara búið. Mér fannst við spila vel í seinni hálfleik og létum ekki stressið hafa áhrif á okkur. Ég var gríðarlega ánægður með það," sagði Þorlákur sem hrósaði liði Aftureldingar. „Þær voru vel skipulagðar en það var ekki mikið í gangi hjá þeim fram á við. Þær eru búnar að gera gríðarlega vel í sumar og ég er mjög hrifinn af John þjálfaranum hjá Aftureldingu sem er búinn að gera frábæra hluti með þetta lið," sagði Þorlákur. „Það skiptir máli fyrir okkur að klára þetta í dag en við vissum alveg að við værum ekkert að fara að klúðra þessu," sagði Þorlákur en Stjarnan þurfti einn sigur út úr síðustu þremur leikjum sínum. „Hugarfar leikmanna er fyrst og fremst að skila þessu en markmiðssetningin tókst því við stefndum á þetta. Það er samt hugarfar leikmanna sem gerir það að verkum að við unnum þennan titil," sagði Þorlákur en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Tindastóll - Álftanes | Stórliðið mætir á Sauðárkrók Körfubolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn KR - Sindri | Heldur sigurganga KR-inga áfram? Körfubolti 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira