Pála Marie: Ekki reikna með stórsigri Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 20. ágúst 2011 12:45
Pála Marie Einarsdóttir, leikmaður Vals, segir Valsstelpur ætla með bikarinn á Hlíðarenda, þar sem hann á heima. Hún segir stemmninguna í liðinu góða. „Hún er rosagóð. Það hlakka allir til þess að spila. Það er alltaf jafngaman að koma hingað og spila bikarúrslitaleik." Pála Marie hefur bæði verið í sigurliði og tapliði í bikarúrslitaleik og á því misjafnar minningar frá Laugardalsvelli. „Ég held í þessar góðu og reyni að gleyma þeim sem þarf að gleyma. En það er bikar í góðu og auðvitað ætlum við heim með hann." Pála lítur ekki á leikinn sem möguleika á að hefna fyrir úrslitaleikinn árið 2008 þegar KR gjörsigraði Val 4-0. „Nei, bæði lið eru mjög breytt þannig að það er ekki alveg hægt að bera þetta saman." Valskonur gáfu út fyrir tímabilið að liðið stefndi á að vinna tvöfalt. Nú virðist Íslandsmeistaratitillinn genginn þeim úr greipum og bikarinn hugsanlega leið til þess að bjarga sumrinu. „Já, hinn er nánast kominn í Garðabæinn en þessi er ennþá í Reykjavík og við ætlum að skella honum á Hlíðarenda, þar sem hann á að vera." Flestir reikna með sigri Valskvenna á laugardag og jafnvel stórsigri. „Nei, ég myndi ekki reikna með honum. Við ætlum að sjálfsögðu að vinna þennan leik en KR er með gott lið og það er ekkert gefið í bikarúrslitum." Pála er með einfalda uppskrift að sigri í leiknum. „Við ætlum að verjast vel og skora fleiri mörk en þær. Það virkar oftast til þess að vinna leiki."
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira