Umferðaröngþveiti bjargaði líklega lífi Gro Harlem Brundtland 31. júlí 2011 10:13 Gro Harlem Brundtland var forsætisráðherra Noregs 1981, 1986-89 og 1990-96. Síðar gegndi hún embætti framkvæmdastjóra heilbrigðisstofnunar Sameinuðu þjóðanna (WHO). Mynd/AFP
Umferðaröngþveiti virðist hafa bjargað lífi Gro Harlem Brundtland, fyrrverandi forsætisráðherra Noregs, en hún var sem kunnugt er farin úr Útey þegar norski hryðjuverkamaðurinn Anders Behring Breivik kom þangað grár fyrir járnum og myrti tugi ungmenna, að því er norska dagblaðið Verdens Gang greinir frá. Blaðið segir að Breivik hafi sagt í skýrslutökum í gær að hann hefði tafist hinn 22. júlí síðastliðinn og ekki getað hrint ódæðisverkum sínum í framkvæmd innan þess tímaramma sem hann hafði sett sér. Svo virðist sem það hafi bjargað mörgum mannslífum, bæði í Osló og Útey, en fram kemur í Verdens Gang að Breivik hafi sagt í skýrslutökum að hann hafi viljað komast til Úteyjar meðan Brundtland var þar. Verdens Gang og Aftenposten greina frá því að umferðarslys í Osló hafi seinkað allri umferð og þar með tafið Breivik og raskað áformum hans. Þannig hafi hann ætlað að koma sprengjunni fyrir í miðbæ borgarinnar mun fyrr og ætlað sér að fara þaðan beint til Úteyjar.
Hryðjuverk í Útey Noregur Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Sjá meira