Kristín Ýr: Mjög gott að fá þrjú stig í svona leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2011 22:43
Kristín Ýr Bjarnadóttir skoraði seinna mark Vals með þrumuskalla þegar Íslandsmeistararnir unnu 2-1 sigur á Stjörnunni í toppslag Pepsi-deildar kvenna á Vodafone-vellinum á Hlíðarenda í kvöld. „Það er alltaf mikilvægt að fá þrjú stig út úr öllum leikjum ef maður ætlar að vinna þetta mót. Við verðum að fá eins mörg stig og við getum," sagði Kristín Ýr eftir leikinn. „Við vorum ekki búnar að fá þrjú stig út úr báðum leikjunum okkar fyrir þennan leik þannig að það er kannski ekki sannfærandi. Mér finnst að við séum búnar að vera ágætar þótt að við ætlum alltaf að vinna alla leiki og séum fúlar þegar við fáum ekki þrjú stig. Það eru samt engin vandræði á Hlíðarenda," sagði Kristín Ýr brosandi. „Þetta var besti leikurinn okkar og við vorum þéttari núna. Við börðumst og gáfum rúmlega hundrað prósent í þennan leik. Ég er ánægðust með þennan leik því við héldum dampi allan tímann en við höfum dottið svolítið niður í hinum leikjunum," sagði Kristín Ýr. „Þetta er tvö frábær lið og það er mjög gott að fá þrjú stig í svona leik. Við erum komnar á toppinn aftur og við viljum enda þar. Það er ekkert leyndarmál að það er stefnan," sagði Kristín Ýr sem hrósaði hinni 15 ára Hildi Antonsdóttur fyrir leikinn en Hildur var mjög góð á miðju Valsliðsins. „Það er svo skemmtilegt að hún er uppalin. Ég er búin að vera með í að þjálfa hana og hún er ekkert smá góð. Hún er ekki einu sinni efnileg lengur því hún er orðin ógeðslega góð," sagði Kristín Ýr en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Sjá meira