Ólafur: Ég veit ekki hvernig við ætlum að toppa forsetann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. apríl 2011 19:00
Ólafur Guðmundsson var einn af þremur leikmönnum FH sem fengu verðlaun þegar umferðir 15 til 21 í N1 deild karla voru gerðar upp í dag. Ólafur hefur verið lykilmaður í FH-liðinu sem náði í 13 af 14 mögulegum stigum í þriðju umferðinni. „Við erum á hörku siglingu og þetta er allt upp á við hjá okkur. Við verðum að halda áfram að fara upp á við það sem eftir er," sagði Ólafur. „Það þarf að toppa á réttum tíma. Úrslitakeppnin er bara ný keppni, við erum að spila vel þessa dagana og þurfum bara að halda því áfram. Það þarf að hafa fyrir hverjum einasta leik," sagði Ólafur. „Við héldum okkar striki þótt að við ættum einhverja slaka leiki. Við héldum áfram okkar leik og höfðum trú á því sem við vorum að gera. Svo fóru að koma inn menn sem höfðu dottið út vegna meiðsla. Þá fór þetta að smella og kom rytmi í þetta hjá okkur. Þetta tók sinn tíma en þetta er að smella hjá okkur núna," sagði Ólafur. „Það er pínu vandræðalegt að segja frá því að þetta verður fyrsta úrslitakeppnin mín. Það er gaman af því enda er maður ekkert að deyja úr elli og því engin skömm af því. Þetta er bara spennandi og verður skemmtileg keppni. Það er mikil spenna og þetta er áhorfendavænt," sagði Ólafur. „Ég veit ekki hvernig við ætlum að toppa forsetann en þetta verður eitthvað hressandi. Það er glæsilegt hvernig umgjörðin er upp í Krika og ég veit að þetta verður eitthvað flott hjá þeim alla úrslitakeppnina. Við höldum bara áfram að toppa okkur," sagði Ólafur. „Það er allt liðið að spila vel og það hefði verið hægt að velja FH-inga í allar stöður. Það eru allir að skila sínu og það eru allir að spila fyrir liðið. Það er gaman að fá svona verðlaun og það er alltaf mikill heiður," sagði Ólafur en það má sjá allt viðtalið með því að smella hér fyrir ofan.
Olís-deild karla Mest lesið Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti Györ - Víkingur | Víkingar stefna á aðra umferðina Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti „Skil ekki hvernig menn geta flaggað á eða séð eitthvað sem gerist ekki“ Íslenski boltinn Aukinn viðbúnaður vegna sögu Englands og Argentínu Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira