Pavel: Við erum mjög sterkir andlega Óskar Ófeigur Jónsson í Sláturhúsinu skrifar 30. mars 2011 21:59 Pavel var magnaður í kvöld. Mynd/Vilhelm
Pavel Ermolinskij átti flottan leik í kvöld þegar KR komst í 2-0 í undanúrslitaeinvíginu á móti Keflavík eftir sannfærandi 18 stiga sigur í Keflavík í gærkvöldi. Pavel endaði leikinn með 17 stig, 15 fráköst, 8 stoðsendingar og 5 stolna bolta. "Þetta var frábær sigur og við allir höfðum mjög góða tilfinningu fyrir þessum leik. Það var mikil ró yfir liðinu og við vissum alveg hvað við áttum að gera. Við vissum að ef við myndum gera það þá myndum við koma okkur í þá stöðu til að geta unnið leikinn. Það er alltaf gott að geta mætt í leik þegar þú veist hvað þú átt að gera," sagði Pavel eftir leikinn. "Við breytum ekki okkar leik fyrir neinn og það er okkar leikur að keyra upp hraðann. Auðvitað vilja Keflvíkingar líka spila á þessum hraða en mér finnst við gera það betur en þeir og önnur lið. Við höfðum ekki breytt okkar leik fyrir neinn í vetur og leyfum bara hinum liðunum að hafa áhyggjur af okkur. Við spilum bara okkar leik og treystum á sjálfa okkur. Út frá því gerist það sem gerist," sagði Pavel sem var ánægður með allt liðið. "Þetta er mjög samheldið lið og það eru allir að spila mjög vel. Stóru strákarnir eru að sýna frábæra baráttu undir körfunni og voru að taka fleiri, fleiri risastór sóknarfráköst fyrir okkur. Við spiluðu líka frábæra vörn í seinni hálfleik og allt liðið fær toppeinkunn," sagði Pavel. "Við erum mjög sterkir andlega og þar liggur lykillinn hjá okkur núna. Það er ekki spilamennskan heldur er þetta ró og yfirvegun sem er yfir liðinu. Við vitum hvað við eigum að gera og spilum út frán því," sagði Pavel.
Dominos-deild karla Mest lesið Ísland lenti í algjörum martraðarriðli Fótbolti Liverpool vann risaslaginn Fótbolti Lýsir eftir leiðtoga íslenska landsliðsins Handbolti Þjálfari sem mætti Víkingi í fyrra lést í miðjum leik Fótbolti Þjálfaragoðsögn látin taka pokann sinn: „Ég er undrandi“ Fótbolti Meistararnir lágu á heimavelli Fótbolti Falla fleiri gleðitár hjá fjölskyldu Viktors í kvöld? Fótbolti Slavia Prag engin fyrirstaða fyrir Arsenal Fótbolti Björgvin Páll hafi þaggað niður í efasemdaröddum Handbolti „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Uppgjörið: Njarðvík - Hamar/Þór 88-61 | Auðsóttur sigur Njarðvíkinga Keflavíkursigur í kaflaskiptum leik Stjarnan með þægilegan sigur á nýliðunum Hverjir eru bestu ungu strákarnir í Bónus-deildinni? Söguleg byrjun OKC á tímabilinu Íslandsmeistararnir mæta bikarmeisturunum Skagamenn senda Kanann heim Tilþrif 5. umferðar: Jukic stal senunni Ólíkar niðurstöður hjá landsliðsmönnunum Er Tóti Túrbó ofmetinn? „Gott að við gátum verið liðið sem kláraði þetta“ Erfitt kvöld fyrir Ármann og Tindastól Tvöföld tvenna Tryggva í tæpu tapi Góður lokaleikhluti tryggði Njarðvík sigurinn Styrmir með þrettán í öruggum sigri Zamora Uppgjörið: Valur - KR | 93-100 | KR hafði betur í slag Reykjavíkurstórveldanna Diljá stórkostleg í lokin í endurkomu í Hveragerði „Einn af bestu leikmönnunum í sögu íslensks körfubolta“ Hlýtur að vera alvöru krísufundur í Valsheimilinu um helgina Besta byrjun Chicago Bulls síðan Jordan var í liðinu Blikar áfram með fullt hús stiga ÍR - Ármann 96-83 | Nýliðarnir enn í leit að fyrsta sigrinum „Bara feginn að við fundum þó leið“ Tindastóll - Stjarnan 96-95 | Ótrúlegur endir á Króknum „Við þurfum að vera betri varnarlega“ Íslenski körfuboltinn og Grindavík verðlaunuð NBA-leikmaður með krabbamein Haukur Helgi: Höfum ekki verið að spila góðan körfubolta „Getum verið fjandi góðir“ Uppgjörið: Álftanes-Njarðvík 93-92 | Heitur Haukur var hetjan á Álftanesinu Sjá meira