Handbolti

Þýskt lið sýnir Karen og Hildi áhuga

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir.
Fram-stelpurnar Karen Knútsdóttir og Hildur Þorgeirsdóttir hafa undanfarna tvo daga verið í Þýskalandi en þýska félagið Blomberg-Lippe hefur áhuga á stelpunum.

Fram lék einmitt við þetta lið í Evrópukeppninni fyrr í vetur og tapaði. Eftir þá leiki kviknaði áhugi þýska liðsins á leikmönnunum.

Karen hefur einnig verið orðuð við norska liðið Levanger sem Ágúst Þór Jóhannsson stýrir en með liðinu leikur landsliðskonan Rakel Dögg Bragadóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×