Golf

Sabbatini sigraði með nýja svarta kúrekahattinn

Rory Sabbatini sigraði á Honda Classic meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af bandarísku PGA atvinnumótaröðinni.
Rory Sabbatini sigraði á Honda Classic meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af bandarísku PGA atvinnumótaröðinni. Nordic Photos/Getty Images
Rory Sabbatini sigraði á Honda Classic meistaramótinu í golfi en mótið er hluti af bandarísku PGA atvinnumótaröðinni. Hinn 34 ára gamli Sabbatini var með fimm högg í forskot fyrir lokadaginn en hann var einu höggi betri en YE Yang frá Suður-Kóreu. Sabbatini var samtals á 9 höggum undir pari.

Suður-Afríkumaðurinn fór fyrir þremur mánuðum í aðgerð vegna húðkrabbameins í andliti og leikur Sabbatini með „kúrekahatt" til þess að verjast sólargeislunum. Hatturinn vakti athygli og minnir um margt á Ástralann Greg Norman lék ávallt með kúrekahatt á árum áður.

Fyrir sigurinn fékk Sabbatini rúmlega 120 milljónir kr. í verðlaunafé en þetta er sjötti sigur hans á PGA mótaröðinni. Sabbatini setti vallarmet þegar hann lék á 64 höggum á öðrum keppnisdegi mótsins en Graeme McDowell frá Norður-Írlandi jafnaði það met á lokadeginum þegar hann fór upp um 24 sæti og endaði hann í 6. sæti.

Lokastaðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×