Vilja fá dómsmál fellt niður 3. desember 2010 00:00 Mótmæli í Madríd Spænskir fréttaljósmyndarar halda á lofti myndum af Cuoso í spænska þinginu.nordicphotos/AFP „
Eitt af helstu viðfangsefnum bandaríska sendiráðsins í Madríd undanfarin sjö ár hefur verið að reyna að fá fellt niður sakamál gegn þremur bandarískum hermönnum, sem sakaðir eru um að hafa drepið spænskan sjónvarpstökumann,“ segir spænska dagblaðið El Pais, sem hefur upplýsingar um þetta úr leyniskjölum bandarísku utanríkisþjónustunnar. Þetta er eitt af fjölmörgum málum, sem fjölmiðlar hafa fjallað um eftir að leyniskjölin tóku að birtast á vefsíðunni Wikileaks. Bandarísku hermennirnir þrír, Thomas Gibson, Philip Wolford og Philip de Camp, hafa verið ákærðir á Spáni fyrir að hafa drepið myndatökumanninn José Cuoso í Bagdad 8. apríl árið 2003, þar sem hann var að fjalla um Íraksstríðið, sem þá var nýhafið. Cuoso var þá staddur á Palestínuhótelinu þegar skotið var á hótelið úr bandarískum skriðdrekum. Annar myndatökumaður, Taras Protsyuk frá Úkraínu, lét þar einnig lífið þennan dag. Samkvæmt leyniskjölunum hafa bandarískir stjórnarerindrekar og embættismenn átt fjölmarga fundi um málið undanfarin ár með spænskum ráðamönnum og reynt ítrekað að fá það fellt niður. - gb
Fréttir Mest lesið Líþíumrafhlaða líkleg orsök eldsins Innlent Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Erlent Hundur drapst af völdum hitaslags á höfuðborgarsvæðinu Innlent Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Erlent Gegndarlaus áróður hafi tryggt gott gengi Ísraels Innlent Eins og að vera fangi í eigin líkama Innlent Gullfallegt fley Getty-kóngsins við Reykjavíkurhöfn Innlent Joe Biden með krabbamein Erlent Segja kristnar kirkjur ekki geta staðið hjá Innlent Grunaðir um að neyða pilt upp í bíl og gefa honum rafstuð Innlent Fleiri fréttir Joe Biden með krabbamein Íslenskur farþegi í bílslysi þar sem barn lést Rúmenar ganga aftur að kjörborðinu Leó orðinn páfi Tveir létust þegar skip á leið til Íslands sigldi á Brooklyn-brúna Ætlar að tala við Pútín um að „binda enda á blóðbaðið“ Fimm látnir eftir þyrluslys í Finnlandi Tugir látnir eftir hvirfilbyl í Bandaríkjunum Árásirnar sagðar þær umfangsmestu síðan viðræðurnar fóru fyrir bí Níu drepnir í drónaárás á rútu Samþykktu fangaskipti á næstu dögum Hlýtur 25 ára dóm fyrir banatilræðið við Rushdie Gerðu umfangsmiklar árásir á Jemen Óásættanlegar kröfur frá Rússum á stuttum fundi Diplómatinn sem grunaður var um njósnir er látinn Sakaður um að kalla eftir dauða Trumps með mynd af skeljum „Rússland vill augljóslega stríð“ Rekja fjöldamorðið í Örebro til gremju byssumannsins vegna lífs síns Íhuga að refsa Pakistönum með stíflum og fráveituskurðum Litlar væntingar til fyrstu beinu friðarviðræðnanna í meira en þrjú ár Láta heiladauða konu ganga áfram með fóstur vegna þungunarrofsbanns Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Sjá meira