Handbolti

N1-deild kvenna: Stórsigrar hjá Fram og Val

Henry Birgir Gunnarsson skrifar

Fram og Valur sýndu í dag að talsvert mikið bil er á milli þeirra og flestra annarra liða í N1-deild kvenna.

Liðin sýndu andstæðingum sínum þá enga miskunn og hreinlega pökkuðu þeim saman með látum.

FH vann síðan nauman sigur á HK og ÍBV fór stigalaust heim úr Fylkishöllinni.

Úrslit dagsins:

Fylkir-ÍBV  33-26

Markahæstar hjá Fylki: Sunna Jónsdóttir 9, Elín Helga Jónsdóttir 8.

Markahæstar hjá ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 8, Guðbjörg Guðmundsdóttir 5.

Fram-Haukar  38-11

Fram: Stella Sigurðardóttir 10, Karen Knútsdóttir 6.

Haukar: Þórunn Friðriksdóttir 8.

FH-HK   24-20

FH: Steinunn Snorradóttir 8, Ragnildur Rósa Guðmundsdóttir 4.

HK: Brynja Magnúsdóttir 5, Elísa Ósk Viðarsdóttir 4.

Valur-Grótta  43-17

Valur: Anna Úrsula Guðmundsdóttir 7, Hildigunnur Einarsdóttir 7.

Grótta: Tinna Laxdal Gautadóttir 6, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir 5.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×