Lífið

Bannar mömmu að vera í mínípilsum

Mæðgur og fyrirsætur Georgia May Jagger er komin með nóg af fatavali móður sinnar, Jerry Hall.
Nordicphotos/getty
Mæðgur og fyrirsætur Georgia May Jagger er komin með nóg af fatavali móður sinnar, Jerry Hall. Nordicphotos/getty

Fyrirsætan Georgia May Jagger á í mestu vandræðum með að hemja fataval móður sinnar, ofurfyrirsætunnar fyrrverandi Jerry Hall. Georgia May Jagger, sem er ein af eftirsóttustu fyrirsætunum í dag, er dóttir Hall og rokkgoðsins Mick Jagger en hún segir móður sína ekki kunna að klæða sig eftir aldri.

Jagger sakar móður sína um að vera sífellt að ræna stuttum pilsum hennar og að hún geri sér ekki grein fyrir hvaða fatnaður henti rúmlegra fimmtugri konu.

„Ég skammast mín oft fyrir mömmu og að hún þurfi alltaf að reyna að klæða sig eins og hún gerði þegar hún var tvítug," lætur Jagger hafa eftir sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×