Golf

Birgir Leifur með tveggja högga forystu

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Birgir Leifur vippar í dag.
Birgir Leifur vippar í dag. Mynd/Valur Jónatansson
Birgir Leifur Hafþórsson er enn efstur á Íslandsmótinu í golfi sem nú er hálfnað. Birgir lék á einum yfir pari í dag en hefur tveggja högga forysta á næstu menn. Birgir er samtals á tveimur undir pari en þeir Heiðar Davíð Bragason, Sigmundur Einar Másson eru á parinu en Guðmundur Ágúst Kristjánsson einn yfir. Birgir Leifur fékk fjóra fugla í dag en fimm skolla. Keppendum verður nú fækkað en 72 komust í gegnum niðurskurðinn. Stöðuna í mótinu má sjá hérna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×