Golf

Monty líkir Ryder-valinu við HM-val Fabio Capello

Hjalti Þór Hreinsson skrifar
Monty.
Monty. GettyImages
Colin Montgomerie segir að það sé hans erfiðasta verk á ferlinum hingað til að velja Ryder-liðið. Monty er fyrirliði Evrópuliðsins sem mætir Bandaríkjunum í október.

Á sunnudaginn er endanlegt lið tilkynnt. Þeir níu efstu á evrópsku mótaröðinni fara sjálfkrafa í liðið en Montgomerie þarf að velja þrjá til viðbótar.

"Ég vildi að ég gæti tekið 20 manns með því 20 manns eiga skilið að vera í liðinu. Þeir hafa spilað frábærlega, samkeppnin er gríðarlega hörð."

"Þetta er erfiðasta verkefni sem ég hef fengist við. Ég get ekki gert alla ánægða."

"Ég þarf að skilja eftir leikmenn sem hafa hjálpað Evróputúrnum mikið. Þetta er svipað og Fabio Capello hjá Englandi þegar hann þurfti að skilja Theo Walcott eftir fyrir HM. Ég get bara tekið tólf með," sagði Monty.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×